|
|||
2010-10-11 18:21:53 CEST 2010-10-11 18:22:51 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 11 0215Miðvikudaginn 13. október kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokki RIKV 11 0215 sem er með gjalddaga 15. febrúar 2011. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagur 15. október 2010. Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi mánudaginn 18. október 2010. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569 9633 |
|||
|