2016-11-02 09:23:54 CET

2016-11-02 09:23:54 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Eimskip undirritar samning um kaup á flutningafyrirtækinu Nor Lines


Áætluð ársvelta fyrirtækisins er um 110 milljónir evra eða um 13,6 milljarðar
króna 

Eimskip hefur undirritað samning um kaup á norska flutningafyrirtækinu Nor
Lines. Kaupin á Nor Lines falla vel að stefnu Eimskips um fjárfestingu í
kjarnastarfsemi og fela ekki í sér yfirtöku á miklum rekstrarfjármunum. Rekstur
Nor Lines hefur verið erfiður á undanförnum árum og verður starfsemin
endurskipulögð til að ná fram bættri afkomu og til að efla þjónustuna, en það
verður gert með því að aðlaga reksturinn að núverandi starfsemi Eimskips í
Noregi. Með kaupunum mun Eimskip geta boðið viðskiptavinum sínum upp á mun
víðtækari þjónustu en áður þar sem norskir inn- og útflytjendur munu njóta
ávinnings af samlegðaráhrifum í áætlunarsiglingum félaganna tveggja. Áætluð
ársvelta fyrirtækisins nemur um 110 milljónum evra eða um 13,6 milljörðum
króna. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 200 talsins. Kaupin eru fjármögnuð með
handbæru fé. 

Sögu Nor Lines má rekja aftur til ársins 1930, en fyrirtækið rekur víðtæka
þjónustu í Noregi og annast flutninga á sjó og landi. Nor Lines býður
reglubundna þjónustu til og frá Noregi og hefur á undanförnum árum byggt upp
landflutningakerfi þar sem meðal annars flutningur með járnbrautarlestum spilar
stórt hlutverk á mörgum þjónustuleiðum. 

Nor Lines rekur í dag sjö skip á þremur siglingaleiðum til og frá Noregi.
Skipaflotinn verður endurskipulagður ásamt rekstri fyrirtækisins, þar sem
Eimskip mun taka yfir rekstur fimm af sjö skipum fyrirtækisins og mun þar með
styrkja þjónustunetið á milli Noregs, meginlands Evrópu og Eystrasaltsins. Eitt
af skipunum fimm verður í eigu félagsins og fjögur verða leigð. 

Nor Lines rekur víðtæka landflutningaþjónustu með 60 afgreiðslustöðum meðfram
norsku strandlengjunni sem tengja saman landflutninga og siglingar og veitir
þar með flutningaþjónustu heim að dyrum. Fyrirtækið rekur 14 afgreiðslustaði af
þessum 60 en 46 eru í rekstri umboðsmanna. Í gegnum þjónustunetið býður
fyrirtækið jafnframt upp á vöruhúsaþjónustu og flutningsmiðlun. Þjónustunet Nor
Lines í landflutningum samanstendur af 450 flutningabifreiðum sem eru í eigu og
rekstri undirverktaka og þjóna á 50 leiðum á milli þessara 14 afgreiðslustaða. 

Nor Lines selja einnig flutninga með 11 skipum „Hurtigruten“, sem þjónustar
vestur- og norðurströnd Noregs og er með daglegar viðkomur í 32 höfnum. 

Kaupin eru háð samþykki norskra samkeppnisyfirvalda. Nánar verður fjallað um
þau á kynningarfundi Eimskips fyrir fjárfesta og markaðsaðila þann 18. nóvember
næstkomandi. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips

“Kaupin á Nor Lines eru stórt skref í að auka þjónustuframboð og styrkja
núverandi þjónustu Eimskips í Noregi. Eimskip í Noregi rekur í dag sjö
frystiskip sem sinna flutningum á milli Noregs, Hollands og Bretlands, en með
þessum kaupum munum við auka skilvirkni þar sem við munum teygja flutningakerfi
okkar yfir til Eystrasaltsins og Þýskalands. Við fögnum því að fá að starfa með
starfsmönnum Nor Lines að því að auka skilvirkni félaganna. Kaupin eru hluti af
stefnu Eimskips um ytri vöxt og munu styrkja frekar rekstur áætlunarsiglinga
félagsins í Noregi.“ 

Ingvald Løyning, forstjóri DSD

„DSD hóf leit að stefnumarkandi lausnum fyrir Nor Lines snemma á þessu ári. Við
erum þeirrar skoðunar að þörf sé á frekari samþjöppun í flutningastarfsemi og
að Nor Lines þurfi að vera hluti af stærra skipulagi til að geta haldið áfram
að þróa sína starfsemi. Við erum mjög ánægð með að hafa fundið Nor Lines nýjan
samastað í samstæðu Eimskips og teljum þetta vera mjög góða lausn bæði fyrir
viðskiptavini og starfsmenn Nor Lines. Eftir nokkur erfið ár mun salan á Nor
Lines gera samstæðu DSD kleift að einbeita sér að almenningssamgöngum í gegnum
Norled AS og Tide ASA og alþjóðlegum skiparekstri í gegnum DSD Shipping AS.“ 

Um Eimskip

Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland.
Félagið rekur 58 starfsstöðvar í 19 löndum, er með 20 skip í rekstri og hefur á
að skipa um 1.600 starfsmönnum. Um það bil helmingur tekna Eimskips kemur frá
starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi
flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga
þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.