|
|||
![]() |
|||
2015-07-02 12:45:43 CEST 2015-07-02 12:46:44 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Fækkað í framkvæmdastjórn LandsbankansJensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunar og mannauðs í Landsbankanum, hefur látið af störfum í bankanum samkvæmt gagnkvæmu samkomulagi. Landsbankinn hefur unnið að hagræðingu og breytingum á sínum rekstri og er þessi breyting liður í því. Við þetta fækkar framkvæmdastjórum bankans í sex. Svið Þróunar og mannauðs verður lagt niður og einingar fluttar undir aðra í framkvæmdastjórn. Jensína var ráðin í stöðu framkvæmdastjóra í Landsbankanum í október 2010. Hún var um tíma stjórnarformaður Reiknistofu bankanna og hefur setið í stjórn Frumtaks samhliða starfi sínu og verður áfram fulltrúi bankans þar. „Ég vil þakka Jensínu fyrir frábært starf fyrir bankann. Hún hefur verið öflugur samstarfsmaður og leitt fjölda verkefna við að breyta bankanum. Það er eftirsjá að Jensínu og vil ég óska henni alls hins besta í framtíðinni,“ segir Steinþór Pálsson bankastjóri. Nánari upplýsingar: Kolbrún Guðlaugsdóttir, pr@landsbankinn.is 410 4014 eða 862 3679 |
|||
|