|
|||
2024-06-14 15:14:42 CEST 2024-06-14 15:14:42 CEST REGULATED INFORMATION Festi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFesti hf: Festi og Samkeppniseftirlitið undirrita sátt vegna kaupanna á LyfjuFesti og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt vegna kaupa Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. Með sáttinni samþykkir Samkeppniseftirlitið samrunann með skilyrðum sem sett eru til að efla og vernda virka samkeppni á þeim mörkuðum sem samruninn hefur áhrif á og ryðja úr vegi þeim samkeppnishindrunum sem samruninn myndi annars leiða til samkvæmt frummati Samkeppniseftirlitsins. Telst rannsókn málsins af hálfu Samkeppniseftirlitsins því lokið. Sátt Festi við Samkeppniseftirlitið felur í aðalatriðum í sér eftirfarandi þætti:
Af sáttinni leiðir að Festi verður nú heimilt að framkvæma samrunann, með því að taka við rekstri Lyfju og dótturfélaga þess. Næstu vikur verða nýttar af hálfu Festi, sem kaupanda, og SID ehf., sem seljanda, til að undirbúa afhendingu hins selda og greiðslu kaupverðsins sem stefnt er að fari fram fyrri hluta júlímánaðar 2024. Nánar verður upplýst um framgang viðskiptanna um leið og tilefni er til. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi: „Við fögnum þeim mikilvæga og ánægjulega áfanga sem felst í sátt Festi og Samkeppniseftirlitsins vegna kaupanna á Lyfju. Mikil tækifæri felast í samþættingu þjónustu þvert á félögin innan Festi sem og framboði breiðara úrvals nauðsynjavara á hagstæðu verði fyrir viðskiptavini okkar um land allt. Auk þess er skýr samhljómur meðal fyrirtækjanna um aukin þægindi við innkaup, m.a. í gegnum netverslun og heimsendingar, samkeppnishæf verð og fyrirbyggjandi heilsuvernd. Við erum gríðarlega spennt að fá loksins að kynnast þeim öfluga hópi starfsfólks sem stendur að baki Lyfju og ræða tækifærin framundan.“ Frekari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi (asta@festi.is). |
|||
|