|
|||
![]() |
|||
2008-06-23 17:49:03 CEST 2008-06-23 17:50:04 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirTilkynning um sérstakt útboð ríkisbréfa RIKB 08 1212 og RIKB 09 0612Þann 19. júní tilkynnti ríkisstjórnin um viðbótarútgáfu á stuttum flokkum ríkisbréfa fyrir allt að 75 ma.kr. Í tengslum við þá frétt hefur verið ákveðið að bjóða nú til sölu í tveimur flokkum ríkisbréfa fyrir samtals um 25 ma.kr. Útboð verða í flokkunum RIKB 08 1212 og RIKB 09 0612 og verða þau bæði haldin fimmtudaginn 26. júní klukkan 14:00 með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 15.000 milljónir króna að nafnverði í RIKB 08 1212 og 10.000 milljónir króna að nafnverði í RIKB 09 0612. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðunum en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 30. júní 2008. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 08 1212 RIKB 09 0612 Lokagjalddagi 12.12.200 12.06.2009 Útistandandi 37.350 m kr. 15.505 m.kr. Lánstími 6 mán. 12 mán Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|