2009-04-03 18:59:18 CEST

2009-04-03 19:00:26 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- Sparisjóður Mýrasýslu semur við stærstu lánardrottna og selur Nýja Kaupþingi allar eignir


Stærstu lánardrottnar Sparisjóðs Mýrasýslu „SPM“ samþykktu tillögu að
fjárhagslegri endurskipulagningu SPM 27. mars síðastliðinn. SPM hafði í
kjölfarið frumkvæði að því að ganga til samninga við Nýja Kaupþing. Það var
gert til að tryggja áframhaldandi þjónustu við viðskiptavini sjóðsins og með
hagsmuni samfélagsins í huga. 

Á grundvelli samkomulagsins við stærstu lánardrottna hefur SPM selt eignir
sínar til Nýja Kaupþings. Bankinn mun greiða fyrir eignirnar með skuldabréfi og
útgáfu nýrra hluta í samræmi við þá tillögu sem stærstu lánardrottnar hafa
samþykkt. Samhliða þessu eignast Nýja Kaupþing allt stofnfé í SPM. Samningurinn
er háður endanlegu samþykki Fjármálaeftirlitsins. 

Með kaupunum yfirtekur Nýja Kaupþing allar eignir og skuldir SPM, þar með talin
innlán, sem eru að fullu tryggð. Nýja Kaupþing tekur við rekstri afgreiðslu SPM
í Borgarnesi. Stefnt er að sameiningu útibúa Nýja Kaupþings og SPM í Borgarnesi
á næstu vikum. Bernhard Þór Bernhardsson sparisjóðsstjóri SPM tekur við
sameinuðu útibúi SPM og Nýja Kaupþings. 

Þessi lausn tryggir viðskiptavinum SPM óbreytta þjónustu. 

Jafnframt mun Nýja Kaupþing eignast dótturfélög SPM, þar með talið Afl
Sparisjóð og Sparisjóð Ólafsfjarðar. Stefnt er að rekstri þeirra í óbreyttri
mynd. 

Sparisjóður Mýrasýslu hefur átt í miklum fjárhagsörðugleikum undanfarin
misseri. Með þessu næst farsæl lausn á vanda hans sem lánardrottnar,
viðskiptavinir, starfsfólk og aðrir hagsmunaðilar geta verið sáttir við. 
Þá er ekki lengur þörf á eiginfjárframlagi frá ríkissjóði eins og
sparisjóðurinn hefur kost á samkvæmt neyðarlögunum. 

Allar nánari upplýsingar veita:

Bernhard Þór Bernhardsson  Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu s, 848-3450,
430-7543. 
Iða Brá Benediktsdóttir forstöðumaður hjá Nýja Kaupþingi, s: 856-7107.