|
|||
![]() |
|||
2012-05-04 18:32:46 CEST 2012-05-04 18:33:49 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - ÁrsreikningurAfkoma umfram væntingar stjórnenda á fyrsta ársfjórðungi-- Tap á fjórðungnum nam 13,2 milljónum bandaríkjadala. -- Mikill innri vöxtur og 21% tekjuaukning frá sama tímabili í fyrra. -- Aukning ferðamanna til Íslands jók tekjur af ferðatengdri þjónustu. -- Handbært fé frá rekstri var 86,1 milljón dala. -- Eiginfjárhlutfall var 31%. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri: „Afkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi var betri en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir og einkenndist af áframhaldandi innri vexti. Tekjuvöxtur nam 21% á milli ára. Aukning í farþegatekjum var 31%. Farþegum fjölgaði bæði í millilandaflugi og innanlandsflugi. Mikil aukning varð í fjölda ferðamanna sem komu til Íslands sem hafði jákvæð áhrif á ferðaþjónustu. Í byrjun árs gáfum við út EBITDA spá fyrir árið 2012 sem nam 90-98 milljónum dala. Síðan þá hafa rekstrarforsendur að mestu þróast á jákvæðan veg. Miðað við uppfærðar forsendur er gert ráð fyrir að EBITDA á árinu muni nema 100-105 milljónum dala.“ Frekari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801 |
|||
|