2011-08-08 17:32:53 CEST

2011-08-08 17:33:55 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 11 1115 og RIKV 12 0215


Fimmtudaginn 11. ágúst kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 11 1115 og RIKV 12 0215 sem eru með gjalddaga 15.
nóvember 2011 og 15. febrúar 2012. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 15. ágúst 2011.

Sótt verður um að RIKV 12 0215 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi þriðjudaginn 16. ágúst 2011. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.