2022-01-25 12:27:00 CET

2022-01-25 12:27:02 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Arion banki hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 27. október 2021 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar sem birt var 12. Desember 2021 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 3. viku 2022 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Engin sænsk heimildarskírteini (SDR) voru keypt í vikunni á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Hlutir í eigu Arion eftir viðskipti
17.1.202210:25:42200.000184,0036.800.000146.843.822
17.1.202211:11:20100.000184,0018.400.000146.943.822
17.1.202212:19:19200.000184,5036.900.000147.143.822
17.1.202214:05:43100.000185,0018.500.000147.243.822
18.1.202209:33:11200.000184,0036.800.000147.443.822
18.1.202209:35:11109183,0019.947147.443.931
18.1.202210:48:30150.000183,5027.525.000147.593.931
18.1.202211:41:46250.000183,5045.875.000147.843.931
19.1.202209:33:42100.000184,0018.400.000147.943.931
19.1.202210:05:36100.000184,0018.400.000148.043.931
19.1.202210:49:0855.000184,0010.120.000148.098.931
19.1.202213:45:55150.000184,0027.600.000148.248.931
19.1.202214:30:36100.000186,0018.600.000148.348.931
20.1.202214:15:37200.000185,5037.100.000148.548.931
21.1.202210:06:42150.000184,5027.675.000148.698.931
21.1.202210:22:58150.000184,5027.675.000148.848.931
21.1.202211:19:26100.000184,5018.450.000148.948.931
21.1.202213:08:5150.000184,009.200.000148.998.931
21.1.202214:38:08100.000184,0018.400.000149.098.931
21.1.202215:10:42100.000183,5018.350.000149.198.931
  2.555.109 470.789.947149.198.931

Engin sænsk heimildarskírteini (SDR) voru keypt í viku 3 á Nasdaq í Stokkhólmi.

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 3 samtals 147.992.563 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 3 samtals 150.547.672 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 9,07% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 38.693.356 hluti og 344.686 heimildarskírteini.

Samkvæmt endurkaupaáætlun bankans verða að hámarki keyptir 54.490.370 hluti/SDR, sem samsvarar 3,28% af útgefnum hlutum í bankanum. Heimilt er að kaupa allt að 544.904 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,03% af útgefnum hlutum og allt að 53.945.466 hluti á Íslandi, sem samsvarar 3,25% af útgefnum hlutum. Fjárhæð endurkaupanna skal ekki vera meiri en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 9.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 10 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 16. mars 2022. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, þ.á.m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.