|
|||
![]() |
|||
2016-04-14 08:01:06 CEST 2016-04-14 08:01:06 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur Hf : Ársfjórðungsuppgjör 2016 - hádegisverðarfundur 29. apríl kl.12:00Tilkynning frá Össuri hf. no: 39/2016 Össur hf. birtir fyrsta ársfjórðungsuppgjör 2016 eftir lokun markaða miðvikudaginn 27. apríl 2016. Símafundur fimmtudaginn 28. apríl kl. 7:00 Símafundur verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl. 7:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, munu kynna niðurstöður fyrsta ársfjórðungs. Fundurinn fer fram á ensku. Innhringinúmer á símafundinn er 800-7417. Hægt er að fylgjast með kynningunni á heimasíðu Össurar: www.ossur.com/investors Hádegisverðarfundur föstudaginn 29. apríl kl. 12:00 Hádegisverðarfundur verður haldinn á Íslandi þann 29. apríl kl. 12:00 þar sem Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, mun kynna niðurstöður fyrsta ársfjórðungs. Hádegisverðarfundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Össurar hf. að Grjóthálsi 5 á 4. hæð. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið ir@ossur.com. Gögn sem tengjast uppgjörinu verða birt á vefsíðu Össurar: www.ossur.com/investors [HUG#2003440] |
|||
|