|
|||
2009-12-15 17:30:00 CET 2009-12-15 17:40:05 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612Föstudaginn 18. desember kl. 14:00 fer fram útboð í tveimur flokkum ríkisbréfa með tilboðsfyrirkomulagi hjá Lánamálum ríkisins. Í þessu útboði verða seld bréf í RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612. Ákvörðun um útboðsfjárhæð verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 23. desember 2009. |
|||
|