Marel hf. mun birta árshlutareikning sinn fyrir 1. ársfjórðung 2017 eftir lokun markaðar þann 3. maí 2017.
Marel boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem Árni Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins fyrir 1. ársfjórðung 2017. Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 4. maí kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ.
Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast
Morgunverður frá kl. 8:00.