|
|||
![]() |
|||
2010-04-15 18:07:39 CEST 2010-04-15 18:08:39 CEST REGLERAD INFORMATION Íbúðalánasjóður - ÁrsreikningurÁrsreikningur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2009Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs nam 3.202 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í árslok var 10.083 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 3,0%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Í samræmi við 7. grein framangreindrar reglugerðar gerði sjóðurinn félags- og tryggingamálaráðherra grein fyrir því að að eiginfjárhlutfall sjóðsins stefndi undir 4,0%. Stjórn sjóðsins vinnur nú að tillögum um leiðir til að ná langtímamarkmiði um eiginfjárhlutfall en sjóðurinn hefur nú þegar hækkað vaxtaálag á nýjum útlánum. Í árslok námu útlán 756.634 millj. kr. og hækkuðu um 76.228 millj. kr. á árinu. Lántaka sjóðsins nam 784.570 millj. kr. og hækkaði um 71.901 millj. kr. á árinu. Kreppan sem ríkt hefur á fjármálamörkuðum frá haustmánuðum 2008 hefur haft veruleg áhrif á Íbúðalánasjóð. Sjóðurinn átti 16.620 millj. kr. kröfu á viðskiptabankana vegna skuldabréfa og afleiðusamninga við fall þeirra í október 2008. Á sama tíma skuldaði hann þeim 5.342 millj. kr. vegna afleiðusamninga og íbúðabréfa. Á árinu 2009 vék Fjármálaeftirlitið (FME) stjórnum SPRON og Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. frá og skipaði skilanefndir yfir bankana. Samkvæmt ákvörðun skilanefnda var innlánum Íbúðalánasjóðs að fjárhæð kr. 5.254 millj. kr. haldið eftir á lokuðum reikningum. Á árinu 2009 var niðurfærsla að fjárhæð 2.914 millj. kr. gjaldfærð í rekstrarreikningi vegna fyrrgreindra krafna Sú niðurfærsla kemur til viðbótar niðurfærslu að fjárhæð 7.875 millj. kr. sem færð var í rekstrarreikningi ársins 2008 til að mæta áætluðu tapi sjóðsins. Í heild hefur því verið færð niðurfærsla að fjárhæð 10.789 millj. kr. vegna þessara krafna. Á meðal krafna á lánastofnanir eru eignfærðar 2.352 millj. kr. (sjá skýr. 6). Í uppgjöri sjóðsins er gengið út frá að hann eigi rétt á skuldajöfnun. Óvissa er um uppgjör krafna og afleiðusamninga ásamt heimild sjóðsins til skuldajöfnunar. Á árinu 2010 hefur sjóðurinn náð samningum við SPRON, en enn er ágreiningur um innstæður sjóðsins hjá Straumi-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. Tap sjóðsins getur því orðið annað þegar endanleg uppgjör fara fram. Virðisrýrnun útlána nam 3.444 millj. kr. í lok árs 2009 og hækkar um 1.780 millj. kr. frá fyrra ári. Vanskil hafa aukist milli ára en um 5,3% lántakenda sjóðsins eru með einn eða fleiri gjalddaga í vanskilum í árslok 2009. Á árinu leysti sjóðurinn til sín 251 íbúð til fullnustu krafna. Íbúðir í eigu sjóðsins voru 347 í árslok 2009 og fjölgaði um 151 frá árslokum 2008. Á árinu 2009 nýttu um 50% lántakenda sér heimild um greiðslur íbúðalána miðað við greiðslujöfnunarvísitölu í stað vísitölu neysluverðs. Í því felst að greiðslur lántakenda lækka tímabundið og leggst mismunur greiðslna inn á jöfnunarreikning lánsins. Samkvæmt nýlegum breytingum á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga nr. 63/1985 mun endurgreiðsla skuldar einstaklings á jöfnunarreikningi, eftir að upprunalegum lánstíma lýkur, aldrei standa lengur en í þrjú ár. Skuld sem stendur eftir á jöfnunarreikningi í lok þriggja ára frá lokum upprunalegs lánstíma skal gefin lánþega eftir. Sjóðurinn hefur ekki metið áhrif mögulegra afskrifta í lok framlengds lánstíma. Nánari upplýsingar veita Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri og Ásta H. Bragadóttir aðstoðarframkvæmdastjóri í síma 569 6900. |
|||
|