|
|||
![]() |
|||
2016-03-22 10:38:21 CET 2016-03-22 10:38:21 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirReitun hækkar lánshæfiseinkunn ORReykjavík, 2016-03-22 10:37 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Reitun hefur hækkað lánshæfismat Orkuveitu Reykjavíkur (OR) úr úr i.A1 í i.AA3 með stöðugum horfum. Í viðhengdu mati segir: „Orkuveita Reykjavíkur er aftur að verða eitt stærsta og traustasta fyrirtæki landsins.“ Ennfremur segir að aðgerðir stjórnar og stjórnenda hafi gengið samkvæmt áætlun og gott betur. Nú þegar hafi stórir áfangar náðst og allar forsendur séu að óbreyttu til staðar til að OR nái markmiðum sínum um lága skuldsetningu, sterkara lausafjárhlutfall, minni markaðsáhættu og trausta rekstrarframlegð. Í mati Reitunar er þess getið að sá mikilvægi áfangi hafi náðst á árinu 2015 að fjárhagslegt markmið Plansins um bætta sjóðstöðu OR var náð, einu og hálfu ári fyrr en áætlað var, og að uppfærðar fjárhagsáætlanir beri merki áframhaldandi aðhalds í rekstri. „Reitun telur í ljósi þess árangurs sem náðst hefur og þeirrar styrku og góðu samvinnu sem virðist vera milli stjórnar og stjórnenda að þessi nýuppfærða áætlun sé raunhæf og gott skref fram á við,“ segir í matinu. Þá er bent á að þrátt fyrir góðan árangur sé OR ekki enn ekki búin að ná þeim styrk sem stefnt var að. Nánari upplýsingar: Ingvar Stefánsson framkvæmdastjóri fjármála OR +516 6100 |
|||
|