2015-07-29 19:44:36 CEST

2015-07-29 19:45:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Ársreikningur

Afkoma annars ársfjórðungs 2015-Mikill tekjuvöxtur og góð afkoma


Mikill tekjuvöxtur og góð afkoma
(Allar upphæðir eru í evrum)


  --  Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2015 námu 218,3 milljónum evra [2F 2014:
     169,8m].
  --  Leiðrétt EBITDA* á öðrum ársfjórðungi var 37,2 milljónir evra sem er
     17,1% af tekjum. [2F 2014: 18,0m]. EBITDA var 38,1 milljón evra sem er
     17,5% af tekjum [2F 2014: 13,0m].
  --  Leiðréttur rekstrarhagnaður* (adj. EBIT) á öðrum ársfjórðungi 2015 var
     29,7 milljónir evra, sem er 13,6% af tekjum. [2F 2014: 10,7m]. EBIT var
     28,5 milljónir evra sem er 13,1% af tekjum [2F 2014: 3,6m].
  --  Hagnaður annars ársfjórðungs 2015 nam 19,5 milljónum evra [2F 2014: 0,8m]. Hagnaður á hlut var 2,71 evru sent [2F 2014:  0,10 evru sent].
  --  Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 23,7 milljónum
     evra á öðrum ársfjórðungi 2015 [2F 2014: 20,4m]. Nettó vaxtaberandi skuldir
     í lok fjórðungsins námu 156,0 milljónum evra [2F 2014: 204,5m].
  --  Pantanabókin stóð í 165,9 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs 2015
     samanborið við 178 milljónir evra í lok fyrsta ársfjórðungs 2015.


Gott jafnvægi er á milli pantana í öðrum ársfjórðungi á milli
uppbyggingaverkefna, endurnýjunar-verkefna og viðhaldsverkefna og söluverkefni
dreifast vel á heimsvísu. Pantanastaða í fisk- og kjúklingaiðnaði er góð en
markaðsaðstæður í áframvinnslu og kjöti hafa gefið lítillega eftir. Búast má
við að tekjur í þriðja ársfjórðungi verði lægri en í öðrum ársfjórðungi vegna
árstíðabundinna áhrifa og tímasetningu á afhendingu búnaðar til viðskiptavina.
Heilt yfir eru markaðsaðstæður góðar. 

Fyrri helmingur ársins 2015 var góður fyrir Marel með góðri aukningu í tekjum
og hagnaði. Tekjur á fyrri helmingi ársins námu 428 milljónum evra og nam
leiðréttur rekstrarhagnaður (e. EBIT) 12,5% af tekjum (53,5 milljónir evra)
samanborið við 325 milljónir evra og 4,7% af tekjum á fyrri helmingi síðasta
árs. 

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

“Fyrri hluti ársins einkenndist af miklum tekjuvexti og afkomubata. Tekjur
félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nema 428 milljónum evra og er
rekstrarhagnaður félagsins 12,5% af tekjum, að teknu tilliti til
einskiptisliða. Við erum stolt af árangrinum sem byggir á sterku vöruframboði,
nánum tengslum við viðskiptavini og góðum markaðsaðstæðum. 

Með nýsköpun og markvissri markaðssókn ætlar Marel sér að viðhalda stöðu
félagsins sem leiðandi aðila á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum
búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Fjárhagsstaða
félagsins er firna sterk sem gefur okkur ýmis tækifæri til vaxtar.“ 


Einfaldara og skilvirkara Marel
Tveggja ára áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel (e. Simpler, Smarter,
Faster) gengur samkvæmt áætlun og mun renna sitt skeið í lok þessa árs. Markmið
áætlunarinnar er að gera markaðssókn skilvirkari, að mæta þörfum viðskiptavina
með skilvirkari hætti og lækka kostnaðargrunn félagsins. 

Á öðrum ársfjórðungi var starfsemi Marel í háhraða skurðartækni í Norwich,
Bretlandi seld til Middleby Corporation. Lokið var við söluna í febrúar og áttu
formleg eigendaskipti sér stað í apríl. Salan hafði óveruleg jákvæð áhrif á
rekstrarreikning annars ársfjórðungs og skilaði jákvæðu sjóðstreymi sem nam 9
milljónum evra. Fasteign Marel í Oss í Hollandi var seld í apríl og skilaði
salan jákvæðu sjóðstreymi sem nemur 2,4 milljónum evra. Starfsemi félagsins í
Oss hafði áður verið flutt til fjöliðnaðarseturs Marel í Boxmeer Í Hollandi. 

Margháttaðar aðgerðir til hámörkunar á framleiðslukerfinu hafa komið til
framkvæmda og hefur framleiðslustöðum verið fækkað úr 19 í 11. Búast má við að
kostnaður vegna hagræðingaraðgerða muni aukast á seinni helmingi ársins
samanborið við annan ársfjórðung þar sem fyrrnefndum aðgerðum um hámörkun á
framleiðslukerfinu verður lokið með tilheyrandi kostnaði. Hér er meðal annars
vísað til flutnings á starfsemi frá Des Moines til Gainsville í Bandaríkjunum
og frá Borgundarhólmi til Árósa í Danmörku auk fjölda annarra smærri
hagræðingaraðgerða sem lokið verður við fyrir árslok. 

Frá því að áætluninni um einfaldara og skilvirkara Marel var hleypt af
stokkunum og til loka annars  ársfjórðungs 2015 að teknu tilliti til sölu
rekstrareininga, er heildarkostnaður til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða 14
milljónir evra en kostnaður í rekstrarreikningi fyrir sama tímabil 28 milljónir
evra þar af 1,1 milljón evra í öðrum ársfjórðungi. Áætlaður heildarkostnaður
til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða mun ekki fara yfir 25 milljónir evra á
tímabilinu 2014-2015. 

Horfur
Marel gerir ráð fyrir áframhaldandi innri vexti 2015 og góðri aukningu í 
rekstrarhagnaði og afkomu eftir skatt. Megináherslan er sem fyrr, á aukna
skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður
ársins 2017 verði yfir 100 milljónum evra. 

Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða
um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni
arðsemi. Framtíðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur
nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en
markaðurinn. 

Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga
vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningar stærri
verkefna. 

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta
uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á
heimasíðu Marel: 
www.marel.com/2015Q2

Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.

Kynningarfundur 30. júlí 2015
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 30. júlí kl.
8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig
netvarpað: www.marel.com/webcast. 

Birtingardagar fyrir reikningsárið 2015


  --  3. ársfjórðungur 2015                                28. október 2015
  --  4. ársfjórðungur 2015                                3. febrúar 2016 

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veita:
Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626
og 853-8626