2021-02-26 12:18:48 CET

2021-02-26 12:18:48 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Kvika banki hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 25. febrúar sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæðum II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 16.458.333 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 2.182.717.495 að nafnvirði.

Óskað hefur verið eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.