|
|||
![]() |
|||
2012-11-29 21:54:16 CET 2012-11-29 21:55:18 CET REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurAfkoma Eimskips á þriðja ársfjórðungi 2012 í samræmi við væntingar-- Rekstrartekjur fjórðungsins námu 110,7 milljónum evra -- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 10,8 milljónir evra -- Hagnaður eftir skatta var 5,7 milljónir evra -- Eiginfjárhlutfall var 62,8% í lok þriðja ársfjórðungs Gylfi Sigfússon, forstjóri „Rekstrarhagnaður Eimskips fyrir afskriftir á þriðja ársfjórðungi 2012 er að aukast á milli ára og er í samræmi við væntingar félagsins að teknu tilliti til kostnaðar að fjárhæð 0,7 milljónir evra vegna undirbúnings skráningar félagsins á NASDAQ OMX Iceland. Hlutabréf félagsins voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar 16. nóvember síðastliðinn. Flutningsmagn í áætlanaflutningum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 6,3% fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tímabil 2011 og er það ánægjuleg þróun. Á árinu 2011 var ákveðið að bæta við öðru skipi á Ameríkuleið og tengja þannig Norður-Ameríku við Norður-Noreg. Viðbótarskipið er nú að skila auknu magni og tekjum. Magn í frystiflutningsmiðlun á þriðja ársfjórðungi dróst saman um 12,7% frá fyrra ári sem endurspeglast í þróun markaða í Asíu, en þrátt fyrir að magnið sé að minnka þá hefur framlegðin í frystiflutningsmiðlun ekki lækkað að sama skapi. Helstu ástæður fyrir minnkandi magni tengjast ekki flutningi á frystum sjávarafurðum heldur minnkandi flutningum á öðrum afurðum frá Asíu til Evrópu. Horfur í flutningum á Norður-Atlantshafi eru ágætar en töluverður vöxtur hefur verið í flutningum frá Noregi og Færeyjum og í flutningum á milli Evrópu og Norður-Ameríku. Flutningar til og frá Íslandi hafa verið að vaxa en ákveðin óvissa er um útflutning sjávarafurða vegna mikillar birgðasöfnunar og lækkandi afurðaverðs á ákveðnum mörkuðum. Enn er óvissa um fjárfestingar í orkufrekum iðnaði á Íslandi sem haft geta áhrif á flutningamagn á næstu misserum. Eimskip leggur áfram áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu, en það hefur meðal annars verið gert með því að styrkja skipa-, gáma- og tækjakost félagsins með fjárfestingum fyrir 38,8 milljónir evra á fyrstu níu mánuðum ársins. Gert er ráð fyrir að gámaskipin tvö sem eru í smíðum fyrir félagið í Kína verði afhent á árinu 2013, en þau munu styrkja siglingakerfi og þjónustuframboð Eimskips.“ Frekari upplýsingar -- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202 -- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202 -- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: investors@eimskip.is |
|||
|