2017-07-24 13:44:10 CEST

2017-07-24 13:44:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Landsbankinn hf. : Arinbjörn Ólafsson ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Landsbankans


Arinbjörn Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs
Landsbankans og tekur þegar til starfa.

 Arinbjörn lauk M.Sc. prófi í iðnarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og
Ph.D gráðu í sömu grein frá Háskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum árið 2006.
Hann hóf störf á verðbréfasviði Landsbankans árið 2006. Árin 2009-2015 vann hann
að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og stýrði endurútreikningi
gengistryggðra lána. Arinbjörn hefur starfað sem forstöðumaður
upplýsingatæknideildar hjá Landsbankanum frá árinu 2015.

 Á upplýsingatæknisviði Landsbankans starfa um 170 manns. Undir sviðið fellur
m.a. rekstur, viðhald og þróun á tölvu- og upplýsingakerfum bankans og styður
sviðið við framþróun á sviði stafrænnar tækni innan bankans.


[]