|
|||
2017-05-30 17:00:36 CEST 2017-05-30 17:00:36 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Landsvirkjun - ÁrsreikningurÞriggja mánaða uppgjör LandsvirkjunarViðunandi afkoma á fyrsta ársfjórðungiHelstu atriði árshlutareiknings
Hörður Arnarson, forstjóri: „Afkoma fyrsta fjórðungs er vel viðunandi, enda er um að ræða einn tekjuhæsta ársfjórðung í sögu Landsvirkjunar. Þar hjálpaði hækkun álverðs og aukin sala miðað við fyrsta fjórðung ársins 2016, en á móti kom gengisþróun, en íslenska krónan styrktist talsvert á milli ára og óx því kostnaður mældur í Bandaríkjadölum. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem Landsvirkjun notar gjarnan sem helsta mælikvarða á rekstur fyrirtækisins, jókst um 16% á milli ára og er með betri ársfjórðungum frá upphafi.“
|
|||
|