2015-02-04 16:31:00 CET

2015-02-04 16:31:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 17 0206


Föstudaginn 6. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum tveggja ára flokki ríkisbréfa RIKB 17
0206. Flokkurinn ber 5,00% árlega nafnvexti með vaxtagjalddaga 6. febrúar ár
hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 6. febrúar 2017. Nánari lýsing á flokknum
fylgir í viðhengi með þessari frétt og frekari upplýsingar er hægt að sjá á
www.lanamal.is. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu
útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10.
febrúar 2015. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði
öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 11. febrúar 2015.

Óskað verður eftir skráningu bréfa sem seld verða 6. febrúar 2015 í NASDAQ á
Íslandi þann 12. febrúar 2015. 



                                  SKIPTIÚTBOÐ

Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 17 0206 með sölu á RIKB
15 0408, sem fellur á gjalddaga 8. apríl nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 15
0408 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,941 (103,750589 með
áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 11. febrúar 2015.
Til skýringar, jafngildir verðið 4,71% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt
áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem
vilja nota RIKB 15 0408 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna Lánamálum
ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 10. febrúar 2015. 

Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 15 0408 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í
öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði
með því að hafa samband við næsta banka. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.