2024-04-29 10:45:00 CEST

2024-04-29 10:45:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. mars 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.

Í viku 17 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 397.368 eigin hluti að kaupverði alls kr. 40.058.037 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsTímiKeyptir
hlutir
ViðskiptaverðKaupverð
(kr)
Eigin hlutir
eftir viðskipti
22.4.202413:01:52176100,5017.68838.049.775
22.4.202414:05:592.531100,50254.36638.052.306
22.4.202414:16:5948.207100,504.844.80438.100.513
22.4.202414:16:5946.793100,504.702.69738.147.306
23.4.202413:56:43161100,5016.18138.147.467
23.4.202414:12:51500100,5050.25038.147.967
24.4.202409:50:30249.500101,0025.199.50038.397.467
26.4.202409:36:154.394100,00439.40038.401.861
26.4.202410:13:0018.500100,501.859.25038.420.361
26.4.202411:00:5926.606100,502.673.90338.446.967

Samtals vikan397.368
40.058.037

Fyrir framangreind viðskipti í viku 17 átti bankinn 38.049.599 eigin hluti, sem nemur 1,90% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 3.782.729 hluti, sem nemur 0,19% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 383.125.926 í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 25. mars síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. júní 2024.

Frá upphafi endurkaupaáætlunar í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 38.446.967 eigin hluti eða sem nemur 1,92% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.