|
|||
2015-10-06 15:59:17 CEST 2015-10-06 16:00:18 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirLokað útboð Arion banka á sértryggðum og óverðtryggðum skuldabréfumArion banki verður með lokað útboð á sértryggðum og óverðtryggðum skuldabréfaflokki fimmtudaginn 8. október 2015. Um er að ræða 7 ára markflokkinn ARION CB 22. Samhliða útboði á ARION CB 22 mun Arion banki bjóðast til að kaupa bréf í flokkunum ARION CBI 19 og ARION CBI 34 fyrir allt að 240 milljónir króna að nafnvirði í hvorum flokki. Er það gert í þeim tilgangi að uppfylla samninga um viðskiptavakt sem nýlega voru undirritaðir við Landsbankann hf., MP Straum og Íslandsbanka hf. Eigendum þessara flokka býðst því að bjóða sín bréf án þóknunar, hvort sem er í skiptum fyrir ARION CB 22 eða til beinnar sölu fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 8. október næstkomandi. Endurkaupin verða með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. Arion banki mun taka hæstu kröfu sem boðin er fyrir allt að 240 milljónir króna að nafnvirði í hvorum flokki. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|