|
|||
2009-01-23 12:45:13 CET 2009-01-23 12:46:14 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstöður í útboði ríkisvíxla RIKV 09 0415Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 09 0415 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 11:00 í dag. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 09 0415: Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn RIKV 09 0415 að fjárhæð 56.025 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 30.000 m.kr. að nafnverði á meðalverðinu 96,765 (flatir vextir 15,43%). Hæsta verð tekinna tilboða var 96,95 (14,52%) og lægsta verð tekinna tilboða var 96,545 (16,52%). |
|||
|