|
|||
![]() |
|||
2016-11-02 15:21:15 CET 2016-11-02 15:21:15 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 21 bárust 4 tilboð að fjárhæð samtals 320 m. kr., ávöxtunarkrafan var á bilinu 3,40%–3,44%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 21 að fjárhæð 260 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,40%. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 29 bárust 4 tilboð að fjárhæð samtals 440 m. kr., ávöxtunarkrafan var á bilinu 3,19% – 3,20%. Öllum tilboðum í ARION CBI 29 var hafnað að þessu sinni. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 7 tilboð að fjárhæð samtals 880 m. kr., ávöxtunarkrafan var á bilinu 5,66%–5,75%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 22 að fjárhæð 880 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 5,75%. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.640 m. kr. og fjöldi tilboða var 15. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem tekinn hefur verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 7. desember næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 22.140 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 59.300 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|