2014-09-19 13:45:00 CEST

2014-09-19 13:45:01 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 OG RIKB 31 0124


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 og RIKB 31 0124 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:

Alls bárust 3 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 500 m.kr. að nafnverði. 3
tilboðum var tekið fyrir 500 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,250 (5,34%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 31 0124:

Alls bárust 30 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 9.060 m.kr. að nafnverði. 19
tilboðum var tekið fyrir 7.210 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 95,180 (7,00%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23.
september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 24. september 2014.