|
|||
2008-10-08 11:54:03 CEST 2008-10-08 11:55:03 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAukin fyrirgreiðsla við aðalmiðlaraSeðlabanki Íslands hefur ákveðið að auka fyrirgreiðslu við aðalmiðlara með ríkisskuldabréf. Frá og með deginum í dag hækka hámarkslán í flokkum RIKB 09 0612 og RIKB 10 0317 um 1 ma.kr. í hvorum flokki á hvern aðalmiðlari sbr. 1. grein um skilmála um verðbréfalán til aðalmiðlara dags. 25. sept. 2008. Hæfar tryggingar vegna þessara lána geta verið skuldabréf með ábyrgð ríkissjóðs og bundin innlán fjármálafyrirtækja við Seðlabankann skv. c. lið 1. tl. 7. gr reglna nr. 808/2008 um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands. |
|||
|