|
|||
2009-07-31 18:45:24 CEST 2009-07-31 18:46:25 CEST REGULATED INFORMATION MP Fjárfestingarbanki hf. - Ársreikningur- Afkoma MP Banka hf. á fyrri helmingi ársins 2009Rekstur MP Banka hf. skilaði 412 milljóna króna tapi á fyrstu sex mánuðum ársins 2009. MP Banki hóf rekstur hefðbundinnar viðskiptabankastarfsemi í maí. Undirbúningur hennar var mjög kostnaðarsamur og fer starfsemin ekki að skila arðsemi fyrr en á seinni hluta ársins. Vaxtamunur var jákvæður um aðeins 48 milljónir króna eða talsvert innan við 1% á ársgrundvelli. Á sama tímabili á árinu 2008 var vaxtamunur jákvæður um 762 milljónir króna. Þjónustutekjur drógust saman um 23% frá sama tímabili á fyrra ári og námu 444 milljónum króna, en voru 578 milljónir fyrstu sex mánuði ársins 2008. Ný framlög í afskriftasjóð útlána voru 192 milljónir króna nettó, en voru 45 milljónir á sama tíma árinu áður. Í afskriftasjóði bankans eru nú samtals 2.263 milljónir króna, þar af voru 1.723 milljónir vegna útlána sem hugsanlega kunna að tapast. Nemur sú fjárhæð 15,6% af heildarútlánum bankans. Á tímabilinu voru útlán og kröfur að fjárhæð samtals 166 milljónum króna afskrifaðar að fullu. Bókfært tap vegna hlutdeildarfélaga var 72 milljónir króna en af þeim var 83ja milljóna króna hagnaður árinu áður. Tapið nú er til komið vegna MP Pension Funds Baltic sem er lífeyrissjóðafyrirtæki í Litháen í 50% eigu MP Banka. Uppbygging þess gengur samkvæmt áætlun en fjárfestingin er afskrifuð jafnóðum og viðskiptavild ekki eignfærð. Hlutdeildarfélagið Hraunbjarg var afhent hluthöfum á tímabilinu sem arðgreiðsla og reiknast afkoma þess ekki lengur samkvæmt hlutdeildaraðferð. Eigið fé bankans nam 5.294 milljónum króna en heildareignir voru 56.720 milljónir. Reiknað eiginfjárhlutfall bankans skv. lögum um fjármálafyrirtæki (CAD) var 17,5%, en má lægst vera 8%. Lausafjárstaða bankans var mjög sterk í lok tímabilsins, en kröfur á Seðlabanka Íslands, eignir í íslenskum ríkistryggðum skuldabréfum og erlendum bankainnistæðum námu þá samtals 35 milljörðum króna. MP Banki jók innlán sín verulega á tímabilinu, úr 8.6 milljörðum króna í árslok 2008 í 31 milljarð króna. Tap bankans á fyrri hluta ársins 2009 endurspeglar kostnað bankans af nýrri starfsemi og aðlögun að breyttum aðstæðum á íslenskum fjármálamarkaði. Rekstraraðstæður voru afar óhagstæðar á tímabilinu. Seðlabanki Íslands lækkaði innlánsvexti sína verulega niður í 9,5% sem leiddi til minnkandi vaxtatekna. Á sama tíma hélt Seðlabankinn útlánsvöxtum sínum háum, í lok tímabilsins voru þeir 12%, eða tveimur og hálfu prósentustigum hærri en innlánsvextirnir. Þrátt fyrir mikinn vöxt innlána á tímabilinu minnkaði MP Banki útlán sín. Íslenskt efnahagslíf er ennþá í uppnámi eftir hrun Kaupþings, Landsbankans og Glitnis, síðastliðið haust. Þegar horfur í efnahagslífinu skýrast getur bankinn hafið útlán í verulegum mæli að nýju og þar með aukið arðsemi sína. MP Banki varð stærsti miðlari og viðskiptavaki í Kauphöll Íslands með ríkistryggð skuldabréf á tímabilinu, sem er stór áfangi í sögu bankans. Afar mikilvægt er að við aðstæður mikils fjárlagahalla sem nú að íslenska ríkið eigi greiðan aðgang að fjármagni á hagstæðum kjörum. Fyrstu sex mánuði ársins var þessi starfsemi MP Banka rekin með nokkru tapi, en allar líkur eru á að hún skili aftur hagnaði þegar til lengri tíma er litið. Gjaldeyrishöft takmörkuðu tekjumöguleika bankans verulega. Eftir fall bankanna þriggja hefur MP Banki ekki átt kost á gjaldeyrisvörnum til leiðréttingar á gjaldmiðlaáhættu sinni. MP Banki rekur útibú innan Evrópusambandsins í Vilnius í Litháen sem er með eignir í erlendum myntum sem ekki er nú hægt að verja. Bankinn greiddi upp öll útlán sín hjá erlendum aðilum að fullu á tímabilinu og tekur ekki við innlánum erlendis. Fyrri hluti ársins 2009 var tímabil mikillar og erfiðrar aðlögunar í rekstri MP Banka, sérstaklega fyrstu mánuðir þess. Gunnar Karl Guðmundsson tók við stöðu forstjóra bankans hinn 1. júní 2009. Viðskiptabankastarfsemi hefur farið afar vel á stað og viðtökur viðskiptavina verið langt umfram væntingar. Stjórn MP Banka væntir þess að afkoma bankans haldi áfram að batna á seinni hluta ársins. Nánari upplýsingar veita: Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri, sími 8583260 og Margeir Pétursson, stjórnarformaður, sími 5403230. Afrit af árshlutareikningi bankans má finna á heimasíðu bankans, www.mp.is |
|||
|