2011-08-02 11:56:33 CEST

2011-08-02 11:57:34 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun



Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 með síðari breytingum
og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur
stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af
fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 29. júlí s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,51%. 

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50%. 

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðsins á íbúðabréfum og í samræmi við
ofangreinda breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði
óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með
uppgreiðsluákvæði verða 4,40% og 4,90% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis.
Þessi ákvörðun tekur gildi í dag, 2. ágúst 2011.