|
|||
2017-11-23 15:19:43 CET 2017-11-23 15:20:45 CET REGULATED INFORMATION Landsnet hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsnet semur við Norræna fjárfestingarbankann um hagstæða fjármögnun framkvæmdaLandsnet og Norræni fjárfestingarbankinn hafa skrifað undir lánasamning að fjárhæð 50 milljóna bandaríkjadala, um 5,2 milljarða króna, til að fjármagna framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1, Kröflulínu 4 og til að styrkja flutningskerfið í Skagafirði og á Snæfellsnesi. Lánið er mjög hagstætt, til tíu ára og á föstum vöxtum. Framkvæmdirnar á Norðausturlandi skiptast í tvo verkhluta: Tengingu á milli Bakka og Þeistareykja með Þeistareykjalínu 1 og tengingu á milli Þeistareykja og Kröflu með Kröflulínu 4 auk byggingu nýrra yfirbyggðra tengivirkja á hverjum stað. Allt verkefnið var hannað með það að leiðarljósi að mannvirki og vegslóðar falli sem best að umhverfinu. Þá er einnig um að ræða fjármögnun á lagningu á 66 kV jarðstrengjum sem ætlað er að styrkja flutningskerfið og auka öryggi í svæðisbundna kerfinu. Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsnets: „Við erum ánægð með það traust sem NIB hefur sýnt okkur með þessari lánveitingu. NIB gerði sérstaka úttekt á umhverfisþáttum framkvæmdanna og það er ánægjulegt að segja frá því að Landsnet stóðst allar kröfur bankans varðandi umhverfisþætti enda leggjum við mikla áherslu á umhverfismál þegar kemur að okkar framkvæmdum.“
NIB er alþjóðleg fjármálastofnun í eigu átta landa – Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn lánar til opinberra- og einkaverkefna og hefur hæstu mögulegu lánshæfiseinkunn sem er AAA/Aaa frá Standard & Poor‘s og Moody‘s. Nánari upplýsingar gefur Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 861 1766 eða á netfangið: gudlaugs@landsnet.is. |
|||
|