|
|||
![]() |
|||
2017-08-16 20:14:38 CEST 2017-08-16 20:14:38 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til átján, tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust 31 tilboð upp á 5.100 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.500 milljónir kr. Í heild bárust 12 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.480 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,54% - 4,75%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 640 milljónir á 4,65% flötum vöxtum. Í heild bárust 15 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.200 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,55% - 4,75%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.860 milljónir á 4,68% flötum vöxtum. Í heild bárust 4 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 420 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,77% - 5,05%. Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni. Ekkert tilboð barst í 18 mánaða víxilinn. Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 23 ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Ársælsson, fjármögnun Arion banka, eirikur.arsaelsson@arionbanki.is, |
|||
|