|
|||
2016-09-19 11:26:32 CEST 2016-09-19 11:26:32 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumNýr stjórnarmaður hjá Arion bankaÁ hlutahafafundi Arion banka sem fram fór fimmtudaginn 15. september var samþykkt að fjölga stjórnarmönnum bankans um einn, úr sjö í átta. Á fundinum var jafnframt kjörinn nýr stjórnarmaður, John P. Madden, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi. Stjórn Arion banka skipa nú: Benedikt Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Guðrún Johnsen, John P. Madden, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Monica Caneman og Þóra Hallgrímsdóttir. Kirstín er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum. John P. Madden John P. Madden er framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi ehf. Hann hefur starfað hjá BC Partners, Arle, ICG frá árinu 2014. Á árunum 1998 til 2013 starfaði Madden hjá Arcapita, fyrst í Bandaríkjunum en síðar á Bretlandi. Þar áður starfaði hann fyrir Lehman Brothers. Madden er með BA gráðu í hagfræði frá Williams College. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|