2024-05-22 17:55:13 CEST

2024-05-22 17:55:13 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem einn flokkur var boðinn til sölu

Nítján tilboð að fjárhæð 7.760 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,58%-3,65%. Tilboðum að fjárhæð 6.660 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,61%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 21.300 m. kr.

Uppgjörsdagur er 29. maí 2024.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.