2024-07-04 10:55:00 CEST

2024-07-04 10:55:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa. Birt: 2024-07-03 17:45


Heildarstærð ARION CBI 30 var ekki rétt í fyrri tilkynningu. Heildarstærð flokksins verður 25.540 m.kr. eftir útgáfuna.

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 27 og ARION CBI 30 fyrir samtals 6.740 m.kr.

Í flokkinn ARION CB 27 bárust 16 tilboð að fjárhæð 3.480 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,75 – 8,87%. Tilboð að nafnvirði 1.860 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 8,77%. Heildarstærð flokksins verður 50.700 m.kr. eftir útgáfuna.

Í flokkinn ARION CBI 30 bárust 23 tilboð að fjárhæð 6.520 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,56 – 3,66%. Tilboð að nafnvirði 4.880 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,61%. Heildarstærð flokksins verður 25.540 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 10. júlí 2024.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.