2012-09-07 13:45:19 CEST

2012-09-07 13:46:21 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

NIÐURSTAÐA Í ÚTBOÐI ÓVERÐTRYGGÐRA RÍKISBRÉFA


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.880 m.kr. að nafnverði. Einu
tilboði var tekið fyrir 4.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,100 (3,97%
ávöxtunarkröfu). 



RIKB 22 1026:

Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.720 m.kr. að nafnverði. 22
tilboðum var tekið fyrir 4.370 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,500 (7,03%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 11.
september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 12. september 2012.

NidurstodurRIKB.pdf