|
|||
2017-01-31 09:49:53 CET 2017-01-31 09:49:53 CET Icelandair Group hf. - FjárhagsdagatalBirting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2016Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2016, þriðjudaginn 7. febrúar 2017. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 8. febrúar 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í Víkingasal 4-5. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf. Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/ |
|||
|