2011-11-18 12:46:22 CET

2011-11-18 12:47:23 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 31 0124


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 31 0124:

Alls bárust 49 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.760 m.kr. að nafnverði. 11
tilboðum var tekið fyrir 3.780 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 95,750 (6,90%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22.
nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 23. nóvember 2011.