|
|||
![]() |
|||
2017-03-17 23:56:19 CET 2017-03-17 23:56:19 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarMatsfyrirtækið Standard & Poor‘s tilkynnti í kvöld hækkun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands í „A/A-1“ í kjölfar afnáms fjármagnshafta. Horfur eru stöðugar.· S&P telur að nýlegt afnám á nánast öllum fjármagnshöftum og gerð samninga við eigendur aflandskrónueigna styrki erlenda stöðu landsins. · Vegna þessa hækkar S&P langtíma- og skammtímaeinkunnir Íslands í „A/A-1“ úr „A-/A-2“. · Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun S&P að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjármála vegi á móti hættunni á ofhitnun hagkerfisins á næstu tveimur árum. Meðfylgjandi er skýrsla S&P |
|||
|