2017-05-16 18:18:19 CEST

2017-05-16 18:18:19 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Skuldabréfaútboð OR mánudaginn 22. maí


Reykjavík, 2017-05-16 18:17 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- 
Mánudaginn 22. maí 2017 verða boðin til sölu ný skuldabréf í þremur
neðangreindum flokkum Orkuveitu Reykjavíkur, sem allir hafa verið teknir til
viðskipta hjá Nasdaq Iceland. 

Flokkur OR090546:  Verðtryggð jafngreiðslubréf til 29 ára. Áður útgefin
skuldabréf að nafnverði 8.531.724.833 

Flokkur OR090524:  Verðtryggð jafngreiðslubréf til 7 ára. Áður útgefin
skuldabréf að nafnverði 1.688.000.000 kr. 

Flokkur OR011222:  Vaxtagreiðslubréf til 5 og hálfs árs. Áður útgefin
skuldabréf að nafnverði 850.000.000 kr. 

Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það
fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð,
þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í
hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta
eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega
eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð. 


         Nánari upplýsingar:
         Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion
banka, sími 444-7337, netfang verdbrefamidlun@arionbanki.is 
         Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga
OR, sími 516-6100, netfang brynja.kolbrun.petursdottir@or.is 
         Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100,
netfang ingvar.stefansson@or.is