2018-01-16 17:11:08 CET

2018-01-16 17:11:31 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru
boðnir til sölu.

Heildartilboð  í  útboðinu  voru  22 talsins  og  námu  samtals  3.580 m. kr. að
nafnverði.

Þrjú  tilboð að fjárhæð 420 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á
ávöxtunarkröfu á bilinu 5,37%-5,39%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Tólf tilboð að fjárhæð 1.860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24
á  ávöxtunarkröfu  á  bilinu  2,49%-2,58%. Tilboðum  að fjárhæð 1.620 m. kr. var
tekið  í  flokkinn  á  ávöxtunarkröfunni  2,57%. Heildarstærð  flokksins  verður
11.220 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.300 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á
ávöxtunarkröfu  á bilinu 2,49%-2,51%. Tilboðum að fjárhæð 1.200 m. kr. var tekið
í  flokkinn á ávöxtunarkröfunni  2,50%.  Heildarstærð flokksins verður 21.160 m.
kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt  er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. janúar
2018. Arion  banki,  Íslandsbanki  og  Kvika  sinna viðskiptavakt með sértryggða
skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan
í  lög nr. 11/2008 og reglur  Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar
um  skuldabréfin og  tryggingasafnið má  finna á  vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.


[]