2018-01-16 19:03:57 CET

2018-01-16 19:04:58 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 37 tilboð upp á 6.340 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.380 milljónir kr.

Í heild bárust 13 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.560 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,24% - 4,35%.  Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Í heild bárust 21 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 4.340 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,25% - 4,35%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 2.380 milljónir á 4,30% flötum vöxtum.

Í heild bárust 3 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 440 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,48% - 4,55%. Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 19 janúar.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.