|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2021-10-28 17:38:06 CEST 2021-10-28 17:38:27 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Islandsbanki hf.: Afkoma á þriðja ársfjórðungi ársins 2021Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs 2021 (3F21) – besta afkoma í meira en fimm ár
Helstu atriði í afkomu á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 (9M21) – viðsnúningur frá fyrra ári vegna jákvæðrar virðisrýrnunar
Lykiltölur
1. Reiknað sem: (stjórnunarkostnaður + framlag í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta – einskiptisliðir) / (heildarrekstrartekjur – einskiptisliðir). Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka Afkoma Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi var sú besta í rúmlega fimm ár og nam hagnaður fjórðungsins 7,6 milljörðum króna sem samsvarar 15,7% arðsemi á ársgrundvelli sem er umfram markmið bankans og spár greiningaraðila. Bætt afkoma frá fyrra ári skýrist helst af jákvæðri virðisrýrnun sem nam 1,8 milljarði króna á fjórðungnum en undirliggjandi rekstur var einnig gríðarsterkur. Viðsnúningur virðisrýrnunar er tilkominn vegna bjartari horfa í ferðaþjónustu og er hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina áfram á réttri leið. Vaxtatekjur jukust um 6% milli ára í kjölfar aukningar útlána til viðskiptavina á tímabilinu, mest vegna fasteignalána. Hreinar þóknanatekjur jukust um 20% vegna sterks undirliggjandi reksturs þar sem nánast allir starfsþættir stuðla að hækkuninni. Kostnaðarhlutfall var 39,4% sem er undir markmiðum bankans og er tilkomið vegna góðrar tekjumyndunar og hagræðingaraðgerða á undanförnum misserum. Með þessari frammistöðu er Íslandsbanki á góðri leið með að ná 10% arðsemi á ársgrundvelli til lengri tíma litið. Þar að auki var útgáfa víkjandi skuldabréfs að upphæð 750m. kr. sænskra króna á fjórðungnum liður í þeirri vegferð að besta samsetningu efnahagsreiknings bankans. Mikil viðskipti hafa verið með hlutabréf Íslandsbanka í Nasdaq kauphöllinni frá því að frumútboði bankans lauk í júní. Hluthafar íslandsbanka eru þeir fjölmennustu af þeim fyrirtækjum sem skráð eru í íslensku kauphöllina, mikil viðskipti hafa verið með hlutabréfin og gengi bréfanna haldist sterkt frá skráningu samanborið við önnur félög skráð í íslensku kauphöllina og skráða evrópska banka. Viðskiptavinir nýttu sér þjónustu bankans í miklum mæli á fjórðungnum var notkun stafrænna lausna meiri en nokkru sinni fyrr. Bankinn tók þátt í útgáfu grænna/blárra skuldabréfa Brims og samfélags skuldabréfs Grunnstoðar, dótturfyrirtækis Háskólans í Reykjavík. Innleiðing nýs lánakerfis gengur vel og samkvæmt áætlun er stefnt að því að innleiðingu verði lokið fyrir áramót. Þá mun bankinn hafa lokið uppfærslu á öllum grunnkerfum bankans sem gerir okkur enn betur í stakk búin að þjónusta viðskiptavini okkar með stafrænum hætti. Fjárfestatengsl Afkomufundur og vefstreymi föstudaginn 29. október 2021 Íslandsbanki mun halda afkomufund/vefstreymi föstudaginn 29. október kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila í höfuðstöðvum bankans, Hagasmára 3, 9.hæð. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á þriðja ársfjórðungi. Fundurinn fer fram á ensku. Skráning á fundinn fer fram á þessari síðu. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á síðu fjárfestatengsla að honum loknum. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar í gegnum eftirfarandi símanúmer:
Aðgangskóði: 90140657# Öll gögn tengd uppgjöri ásamt upplýsingum um fjárhagsdagatal og þögul tímabil má finna hér: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl Nánari upplýsingar veita:
Póstlisti Íslandsbanka Um Íslandsbanka Viðhengi
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|