2012-02-23 13:02:31 CET

2012-02-23 13:03:33 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

English Islandic
Marel hf. - Hluthafafundir

AÐALFUNDUR MAREL HF. 29. FEBRÚAR 2012


UPPLÝSINGAR UM ARÐGREIÐSLUTILLÖGU

Eins og fram kemur í tillögum stjórnar Marel hf. til aðalfundar félagins árið
2012 er lagt til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins
2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b.
20% af hagnaði ársins. 

Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra.

Arðgreiðslutillagan er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og
arðgreiðslustefnu sem kynnt var á aðalfundi félagsins 2011. 

Viðmiðunardagsetning arðgreiðslu (réttur til arðgreiðslu) yrði við lok
viðskipta á aðalfundardegi, 29. febrúar 2012, og arðleysisdagur því 1. mars
2012. 

Félagið vekur sérstaka athygli á því, að fallist hluthafar á
argreiðslutillöguna verður arðurinn greiddur út í krónum (ISK) en þeir
hluthafar sem óska hins vegar eftir arðgreiðslu í evrum (EUR) skulu tilkynna
félaginu um slíkt með tölvupósti á netfangið dividends@marel.com, eigi síðar en
7. mars 2012. Í tilkynningunni skal hluthafi jafnframt veita upplýsingar um
viðeigandi EUR reikning (þ.m.t. IBAN númer, SWIFT kóða og heimilisfang
reikningseiganda), svo unnt sé að greiða arðinn án vandkvæða. Gerð er krafa um
að EUR reikningur þessi sé á nafni viðkomandi hluthafa. 

Hvað erlenda hluthafa varðar, gengur félagið út frá því að óskað verði eftir
arðgreiðslu í EUR, nema félaginu verði tilkynnt um annað. 

Við útreikning á fjárhæð arðgreiðslu verður miðað við miðgengi hins skráða
opinbera við-miðunargengis Seðlabanka Íslands kl. 11:00 á aðalfundardegi
(http://sedlabanki.is/?PageID=7). 

Lagt er til að arðgreiðsla verði innt af hendi þann 14. mars 2012, tveimur
vikum eftir aðalfund. 

Öllum fyrirspurnum varðandi framangreint og hina fyrirhuguðu arðgreiðslu að
öðru leyti skal beint til félagsins í gegnum netfangið dividends@marel.com.