2015-01-19 14:37:19 CET

2015-01-19 14:38:20 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Reitun bætir lánhæfismat á Orkuveitunni


Reykjavík, 2015-01-19 14:37 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Áframhaldandi styrking á
fjárhagsstöðu Orkuveitunnar, trúverðug fjárhagsáætlun ásamt góðum árangri í að
ná markmiðum Plansins eru ástæður þess að lánhæfisfyrirtækið Reitun hefur
breytt lánshæfiseinkunn fyrirtækisins í þá veru að nú eru horfur metnar
jákvæðar. Einkunn Orkuveitunnar er áfram i.A3. Uppfært lánshæfismat er í
viðhengi. 

Útlit fyrir að lánshæfi styrkist

Í mati Reitunar kemur fram að samhliða batnandi fjárhagsstöðu Orkuveitunnar og
minni áhættu sýni fjárhagsáætlun fyrirtækisins að áfram sé unnið að því að
styrkja lausafjárstöðu og veltufjárhlutfall. „Lánshæfi Orkuveitunnar ætti að
styrkjast samhliða auknu fjárhagslegu svigrúmi,“ segir í matinu. 

Alþjóðlega lánshæfisfyrirtækið Moody‘s gerði nýverið samskonar breytingar í
mati þess á lánshæfi Orkuveitunnar. 

Áætlanir Orkuveitunnar og markmiðin sem sett voru með Planinu hafa gengið eftir
og gott betur. Í lok þriðja ársfjórðungs 2014 var uppsafnaður árangur Plansins
orðinn 48,2 milljarðar króna. Þannig hefur rekstrarkostnaður lækkað að
raungildi frá árinu 2010. Tekjur hafa hinsvegar vaxið um rúm 40% frá árinu
2010, úr 27,9 ma.kr. í 39,2 ma.kr. í árslok 2013, en tveir áfangar við
Hellisheiðarvirkjun hafa verið teknir í notkun á þessu tímabili. 

Áhættuvarnir skila árangri

Samhliða hefur Orkuveitan unnið í að bæta aðgengi að lausafé og segir Reitun í
mati sínu að fyrirhuguð fjármögnun muni styrkja lausafé og draga úr þeirri
áhættu sem stafar af lágu lausafjárhlutfalli. 

Orkuveitan tilkynnti um það fyrir helgina að fyrirtækið hefði gert
áhættuvarnarsamninga vegna þróunar gengis gjaldmiðla. Síðustu mánuði hefur
eigið fé Orkuveitunnar styrkst um 2,8 milljarða króna, án áhrifa
greiðsluflæðis, vegna gengisþróunar. 


         Nánari upplýsingar:
         Ingvar Stefánsson
         framkvæmdastjóri fjármála
         516 6000