2024-07-15 11:00:00 CEST

2024-07-15 11:00:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 14. júní 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum.

Í viku 28 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 970.739 eigin hluti að kaupverði alls kr. 96.758.506 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
08.07.202414:43:5012.65998,601.248.17780.585.693
09.07.202411:51:268.08097,80790.22480.593.773
10.07.202411:31:478.30798,60819.07080.602.080
10.07.202411:51:3960.00098,605.916.00080.662.080
10.07.202411:51:4015.00098,601.479.00080.677.080
10.07.202413:38:149.06598,60893.80980.686.145
10.07.202413:48:297.62898,60752.12180.693.773
10.07.202414:28:06250.00099,0024.750.00080.943.773
11.07.202413:23:20200.000101,0020.200.00081.143.773
12.07.202410:17:48100.000100,0010.000.00081.243.773
12.07.202410:47:5252599,6052.29081.244.298
12.07.202410:51:40150.000100,0015.000.00081.394.298
12.07.202414:20:57100.00099,409.940.00081.494.298
12.07.202415:02:5649.47599,404.917.81581.543.773

Samtals vikan970.739
96.758.506

Fyrir framangreind viðskipti í viku 28 átti bankinn 80.573.034 hluti, sem nemur 4,03% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 4.253.636 hluti, sem nemur 0,21% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 414.938.548 í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 11 milljón hluti sem jafngildir 0,55% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 18. júní síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2024.

Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 81.543.773 eigin hluti eða sem nemur 4,08% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.