2011-01-04 16:34:25 CET

2011-01-04 16:35:26 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013



Föstudaginn 7. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu bréf í tveggja ára flokknum RIKB 12 0824 og fimm ára
flokknum RIKB 16 1013. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að
loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 12. janúar 2011.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 11.
janúar 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 12. janúar 2011.