|
|||
![]() |
|||
2015-11-06 16:25:54 CET 2015-11-06 16:26:56 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirTillaga að skilyrðum arðgreiðslna til eigenda ORReykjavík, 2015-11-06 16:25 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur samþykkt tillögu að arðgreiðsluskilyrðum fyrir fyrirtækið. Tillagan er nú til meðferðar hjá eigendum fyrirtækisins; Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og Borgarbyggð. Tillagan er gerð í samræmi við ákvæði í eigendastefnu OR sem gerir ráð fyrir að stjórn samþykki arðsstefnu fyrir fyrirtækið, sem hljóta skuli staðfestingu eigenda. Í tillögunni eru fjárhagslegir mælikvarðar, sem uppfylltir skulu, áður en til arðgreiðslu kemur frá fyrirtækinu og arðgreiðslur megi ekki brjóta gegn. Skilyrðin eru þessi: Skilyrði 2016-2018 2019- ----------------------------------------- 1.Veltufjárhlutfall >1,0 >1,0 2. Eiginfjárhlutfall >35% >40% 3. FFO vaxtaþekja >3,5 >3,5 4. RCF / nettó skuldir >11% >13% 5. FFO / nettó skuldir >13% >17% 6. Arðgreiðsluhlutfall ≤50% ≤50% ----------------------------------------- Samkvæmt Planinu, aðgerðaáætlun sem OR hefur unnið eftir frá árinu 2011, er ekki greiddur arður á gildistíma þess. Planið er í gildi til ársloka 2016. Nánari upplýsingar: Bjarni Bjarnason forstjóri 516 7707 |
|||
|