2015-07-17 18:16:44 CEST

2015-07-17 18:17:45 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Standard og Poor's hækkar lánshæfiseinkunn ríkissjóðs


Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard og Poor's tilkynnti í dag um hækkun á
lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands úr BBB- í BBB. S&P hefur einnig hækkað
einkunnina til skamms tíma úr A-3 í A-2. Horfur verða áfram stöðugar. 

Í fréttatilkynningu S&P kemur fram að ákvörðun um hækkun lánshæfismatsins
byggist á trúverðugri aðgerðaáætlun stjórnvalda til losunar fjármagnshafta.
Aðgerðirnar dragi úr viðkvæmri erlendri stöðu þjóðarbúsins og þrýstingi á gengi
krónunnar. Það leiðir til jákvæðara viðhorfs erlendra fjárfesta til Íslands og
bætir aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum. Einnig leiði aðgerðirnar til þess
að skuldastaða Ríkissjóðs Íslands batnar verulega. Þá er gengið út frá því að
andvirði þeirra tekna sem falla til ríkisins verði notað til að greiða niður
ríkisskuldir en ekki eytt með neinum þeim hætti að stuðlað verði að ofhitnun
hagkerfisins.