|
|||
2009-10-08 17:51:42 CEST 2009-10-08 17:52:43 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 10 0215Þriðjudaginn 13. október kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0215 sem er með gjalddaga 15 febrúar 2010 hjá lánamálum ríkisins. Lánamál ríkisins áskilur sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudaginn 15. október 2009. Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi föstudaginn 16. október 2009. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins í síma 569 9633. |
|||
|