|
|||
2010-10-22 13:45:26 CEST 2010-10-22 13:46:24 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKS 21 0414Útboð á óverðtryggðum og verðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 16 1013 og RIKS 21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 16 1013: Alls bárust 37 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.285 m.kr. að nafnverði. 27 tilboðum var tekið fyrir 5.975 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,945 (6,01% ávöxtunarkröfu). RIKS 21 0414: Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.990 m.kr. að nafnverði. 9 tilboðum var tekið fyrir 4.190 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,360 (3,52% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 26. október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 27. október 2010. |
|||
|