2010-08-31 18:54:36 CEST

2010-08-31 18:55:35 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Reitir II - Ársreikningur

Afkoma Reita II á fyrri árshelmingi ársins 2010


Tap Reita II ehf. (áður Landsafls ehf.) á fyrri árshelmingi ársins 2010 nam 375
milljónum króna samanborið við 1.118 milljón króna tap á sama tímabili í fyrra.
Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 566 milljónum króna samanborið við
728 milljónir á sama tímabili í fyrra. 

Horfur fyrir síðari árshelming ársins 2010 eru ágætar en vænta má að rekstur
félagsins haldi áfram að vera í járnum.
Lykiltölur:

-  Heildareignir námu 21.257 milljónum króna þann 30. júní 2010 og breyttust
   óverulega frá árslokum 2009.
-  Eigið fé félagsins nam 3.474 milljónum króna á sama tíma.

-  Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 806 milljónum króna samanborið við 905
   milljónir króna á sama tíma árið áður. 


Reitir II er í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Félagið á og rekur 18
fasteignir á Íslandi. 

Nánari upplýsingar veitir: 
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita
Sími 575 9000
einar@reitir.is